Deprecated: Function set_magic_quotes_runtime() is deprecated in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php on line 14 Warning: Cannot modify header information - headers already sent by (output started at /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php:14) in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_misc.php on line 1240
Go to content Go to navigation Go to search

Andlits brók ·

Tuesday
31
March
2009

...góðan og blessaðan…

...eins og fram hefur komið í síðustu færslu minni hef ég verið í skóla eftir áramót, og þar af leiðandi hefur verið mikið að gera hjá mér og ég ekki komist í að blogga, síðan er það þessi blessaða brók sem maður er alltaf á þegar maður á sér smá frí ;) þá gleymir maður alveg þeim sem ekki hafa þessa brókasótt ;)....

...annars er allt fínt að frétta á þessum bæ hér hafa allir verið frekar hressir seinni hluta vetrar, fyrir utan smá kvef og því sem fylgir því...

...Kristín er hress að vanda, hefur verið núna í ca tvo mánuði að hitta hann Már sem er barnasálfræðingur, þau eru að vinna saman að því að styrkja Kristinu þar sem hún er ekki nógu vel stödd félagslega, stór karakter með pínu lítið hjarta, svo er stefnan að fara á félagsfærninámseið þegar það hefur samnast nógu margir þáttakendur á það, það námseið felst í því að læra að samskipti við aðra krakka og vini sína, hún hefur verið dugleg í vetur að stunda fimleika og tók hún þátt í innanfélagsmóti núna í vetur og var ekki sátt að hafa ekki unnið sér til verðlauna, hún hélt andlitunu þangað til við vorum alveg að komaheim þá bara brast hún í grát og sagði: ,,MAmma þú veist hvað ég er tappsár, svo var ég miklu betri en sú sem van í mínum hóp,, hvað getur maður sagt annað en að hún hafi staðið sig með prýði og hún geri bara betur nærst og verði dugleg að æfa sig…

...Auður litla fiðrildið okkar sem getur bara ekki verið kjurr, ég nefndi þetta við þær á leikskólanum og þær sögðust ekki hafa tekið eftir neinu sérstökku, tveim dögum seinna þá segja þær við mig að þær hafi fylgst betur með henni síðustu tvo daga, og kom það í ljós að hún er eina í sínum hóp sem getur bara ekki sitið kjur haha kom mér ekkert á óvart samt eru hinar stelpurnar fæddar í júlí, sept og okt sama ár og hún sem er í apríl, ég bað þær að koma fram við hana eins og hún væri ofvirk semsagt með fasta rama hvað má og hvað ekki svo hún læri þetta sem first ;) hún er nú líka bara að verða 3 ára…

...María litla ákveðnust, já já þær verða bara ákveðnari og ákveðnari þessar dætur mínar og ákveðnust er litla prinsessan, hún gjörsamlega stjórnar öllum hér nema mömmunni enda þolir hún það ekki og fær þessi svaka sköst sem ég bara veit ekki hvar hún lærir en hún er samt mjög fljót að jafna sig á þeim, þar sem mamma tekur bara ekki eftir neinu þegar hún byrjar ;), fljót að læra að það þýðir víst ekkert að snúa þeirri sem er ákveðnust múhahaha, en annars er hún alltaf jafn blíð og góðo og mikil kelirófa kemur upp að manni og knússar mann gak og fyrir …

...Friðþjófur minn, já hann samþykkti loksins að koma með mér til háls- nef og eyrnalæknis, og sér eftir því í dag þar sem hann þarf að fara í hálskirtlatöku þar sem þeir eru ornir svo stórir og ljótir, hann fyrirgefur mér þetta örugglega aldrei eða hvað...

...Ég(Inga) skólastelpan sem gerir ekekrt annað en að læra og læra og samt finnst mér ég ekki læra nóg, hef verið að fá bara fínt út úr stöðumatinu, fékk A í öllu miðannarmatinu það er ekki sæmt síðan fékk ég meira að segja A+ fyrir vinnu bók í Dönsku en ekki hvað ;), núna fer að styttast í lok þessa veturs og líða tekur að vorið, páskarnir í nærstu viku svo verða prófin mín þann 12 og 14 maí þar sem ég hef náð tveimur áföngum ;) fer ég bara í tvö próf NICE…

...þið sem en lítið hér inn takk fyrir alla þolinmæðina og vona að þið eigið gott páskafrí knúss og kossar frá okkur til ykkar…

Skráð af Ingu Dögg - Páskakveðjur [2]

Skólastelpa ·

Wednesday
21
January
2009

... já mín er sko byrjuð í skólanum líkar það voða vel, ég er í fjórum fögum þau eru skyndihjálp 101, Danska 102 :), Heilbrigdiðsfræði 103 og svo lífefna og lífeðlisfræði 103

til dæmis í dag var ég að læra að humerus væri proximal miða við Ulna en ulna væri distal miða við humerus svo var ulna medial miða við radius en radius væri lateral miða við ulna og að gaster væri inferior miða við cor og að cor væri superior miða við gaster

skiljið þið ekki alveg hvað ég er að fara með þessu
þetta er lumgst gaman ;) síðan í Dönsku er ég bara með 16 ára krökkum bara gaman haha t.d þá vorum við að ræða saman um Prinsessen pa ækten og þau bara hvaða saga er þetta ég skil ekkert í þessu vældu þau, svo heyrði ég út frá mér að þau voru að tala um helgina og allir voru eiginlega að tala um helgina og hvað var gert það var parti heima hjá 3 í áfanganum og flesstir ef ekki allir höfðu verið í þessum partýum ég hló innra með mér þau að hugsa um þetta og ég með áhyggjur af börnunm mínum um að þau haldi heislu svo ég geti mætt bara gaman

jæja ég ætlaði ekkert að blogg neitt mikið bara aðeins að opna nýtt ár ;)

Með kveðju Inga SKólastelpa

Skráð af Ingu Dögg - Kveðjur [4]

Nýtt ár í vændum ·

Sunday
28
December
2008

... ekki tími til að gera síðasta bloggið fyrir árið 2008…

...af okkur er bara prýðilegt að frétta, allir kátir og glaðir, jólahátíðin var í faðmi vina og fjölskyldu, söknuðum samt Kristínar voðalega mikið...

...Auður já mér var litið inn til hennar eitt kvöldið og leitt á hana þar sm hún lá í rúmi sínu og mér brá litla barnið mitt já litla barnið mitt var að verða of stór í rúmið sitt vantar bara 15 cm ca upp á, þannig að við hjónin fórum að skoða rúm á netinu og OMG hvað rúm eru dýr það er ekki verð fyrir fólk sem er ekki útivinnandi að kaupa, við ætlum að bíða smá með þetta ath hvort ekki komi einhverjar útsölur af rúmum, allir að krossleggja fingur með okkur, Auður er líka búin að vera smá lasin, höfum farið reglulega með hana til læknis þar sem hann er ekki sáttur með andadráttinn hjá henni, sýklalyfin hjálpuðu ekkert til erum núna að prófa púst hún vil ekki sjá það svo við þurfum að vera tvö til að gefa henni það ekki skemmtilegt en kemur í ljós núna milli jóla og nýars hvort það sé að virka…

...María er alltaf jafn kát, hún sofnaði yfir þriðjapakkanum á aðfangadag ;) þá klukkan bara 1930 hún bara getur ekki haldið sér lengur vakandi sama hvað við látum hana sofa um daginn kl 1900 á að fara upp í rúm og sofa hún er svo mikið reglumaneskja…

...Kristin hefur verið hjá pabba sínum um jólahátíðina, og ég hef ekki mikið heyrt frá henni en það er bara merki um að henni líði vel ;)...

...Friðþjófur hefur verið í sumarfríi núna frá 19. des skrítið að hafa hann svona heima , en voða gott að hafa smá tíma fyrir okkur líka hann fer að vinna 5. jan…

...Inga (ég) er farin að kvíða því að byrja í skólanum þann 9. janúar en fer að sækja stundatöfluna mína þann 6. jan, úff fæ alveg í magan bara að skrifa um þetta, ég fór á blindrabókasafnið og náði mér í Mírina og er alveg hútt á að hlusta á hana tók alveg 150 blaðsíður í gær gat ekki hætt svo ég klára hana á morgun það er met hjá mér að ná svo miklu á 3 dögum víí eitthvað gott haha…

...verð að segja ykkur frá því þegar við fórum að ná okkur í jólatré við fórum út í skó þar sem má höggva sér sjálfur tré það var voðalega gaman að labba um og að fá alla til að vera sátta við tréið ;) við fundum eitt sem var alveg 3 metrar haha það var eina sem við vorum sátt með og tókum það þannig að við enduðum með það í 2,6 meturm haha ég varð að keyra heim Friðþjófur komst ekki fyrir í bílstjóra sætinu, þegar heim var komið voru aðrir 3ocm teknir af og núna nær jólastjarnan upp í loft hahaha og það gleypir stofuna mína en þetta er ekkert smá flott jólatré ;)...

...vil þakka öllum sem hafa nennt að lesa bloggið okkar takk fyrir okkur og við óskum ykkur um leið gæfuríkt komandi ár, og þökkum liðnar stundir á því liðna…

Hátíðarkveðjur

Inga, Friðþjófur, Kristin, Auður, María og Rósa:)

Skráð af Ingu Dögg - Nýárskveðjur [2]

Dundur ·

Monday
17
November
2008

...ég er að leika mér að mála, þar sem ég er fram að hádegi, og vá hvað það leggst svona vel í mig og gaman, ég hef verið að prófa mig áfram og bara gerta eitthvað og eitthvað, mikið notað olíu liti þó ég kunni ekkert að nota þá og engin þarna sem kann eitthvða frekkar á þetta haha

þannig að ég bara geri eitthvað og eitthvað, svo þegar ég hef verið hér heima hef ég verið að taka í vaslitamálinguna mína sem ég keypti mér humm já fyrir 6 árum jú jú hún virka ennþá haha, það væri nú gaman að fara á námskeið og læra að nota málinguna á réttan hátt

svo er til svo mikið til að blanda út í olíumálinguna, þannig að ég skráði mig á listabraut í fb haha

bara eitt með mig ég hef ekki mikla þolinmæði en hún er að koma ég er að fatta þetta meira og meira…

...María mín er farin að labba rosalega dugleg, hún er að gera alla gráhærða með uppátækjm sínum,
þær á leikskólanum sögðu við mig á fimmtudaginn að þær hafi verið að gera matin tilbúin við hliðinn á henni bara sníð bakinu í hana, þegar þær heyra skríki og líta við þá situr mín upp á borði búin að koma sér úr stólnum (notebeni var föst í belti , en náði að jugga sér úr því), síðan þá grætur hún ekki þegar hún vaknar þannig að einn daginn kemur foreldri inn til þeirra og segir við þær að eitt barnið er alveg við það komin að fara upp úr vagninum þá sat mín bara og brosti út að eyrum rennandiblaut vegna sliddu sem var úti, jú jú hún deyr ekki ráða laus…

...Kristin hefur verið mjög erfið við mig síðust daga eða vikur reyndar mér finnst ég ekkert ráða við hana, ég er alveg ráðalaus hvað skal gera við hana, einhverjar tillögur…

...Auður er að feta í fótspór stóru systur og hlíðir ekki orðið neinu, hún er búin að taka eitthvað í sig og þá stendur það, er ekki til einhver svona super nanny sem er til í að koma og hjálpa mér með þær haha…

...Friðþjófur já hann er það maðurinn sem býr hér, ég þarf nú ekki að blogga um hann þar sem hann hefur getu til þess sjálfur hahaha…

knúss knúss til ykkar allra frá mér

Skráð af Ingu Dögg - Comment [3]

komin heim ·

Tuesday
28
October
2008

...það var alveg æðislegt úti á Bilbao, við ég þakka þeim Þórunni og Svönu fyrir að líta eftir englunum mínum meðan við hjóninn skelltum okkur út…

...annars er fínt að frétta, veit svo sem ekkert hvað ég á að segja, é skoraði jú á hann Friðþjóf en hann hefur víst ekkert ennþá gert svo ég bið fólk um að sameinast hér og hvetja hann ath hvort andin komi ekki yfir hann múhaha…

...stelpurnar eru hressar eins og alltaf, ég var að klára að bóna gólfið inni í eldhúsi jji hvað ég hlakka til þegar við höfum flísalagt það, svo hreinsaði ég eldvélaofninn, bara voða dugleg ekki satt haha…

...um helgina tók ég fyrir mömmu í gegn klósettið í kjallaranum og tók það bara 5 tíma ég tek það fram að það er ekki nema kannski 3 fm svo 5 tímar er frekar langur tími í að þrífa eitt baðherbergi en það ver sko þörf á að skrúbba og sótthreinsa króka og kima….

...ég fór í leikfimi í gær og mætti í tíma sem heitir áskorun haha það er já áskorun í lagi ég var þarna ásamt nokkrum sem voru flesstir í feikna miklu formi svo ég já ekki í eins mikluformi og allir þarna inni, dæmi ég er vön að vera með lóð 3-4kg en þarna vorum við að nota 7-10kg haha ég nátturulega lét mig bara hafa það og ég er nánast alveg frá í dag vegna harðsperra haha, en ég mæti galvösk á morgun ekki spurning næ þeim úr mér þá ekki satt, núna er það bara harkan 6 og ekkert væl ,,ái mér er ílt í brjóstunum meira að segja tíhí,, humm hver var að tala um ekkert væl…

takk fyrir allar kveðjurnar, minni líka á að maðurinn minn átti líka afmæli þann 25. okt og þar sem við vorum ekki heima allan daginn gleymdi ég að blogga um það :O en sú eiginkona…

Kveðja Inga Stirða

Skráð af Ingu Dögg - koma svo friðþjófur [1]

Get ekki sofnað ·

Thursday
16
October
2008

...jú kl er að ganga 2400 og ég bara næ ekki að róa mig niður, ég er bín að vera spennt alla vikuna má segja, hef alveg verið tímalaus ekki vitað hvaða dagur er og annað er þetta eðlilegt að vera svona spenntur eða er þetta kvíði fyrir því sem koma skal, jú jú við erum nefnilega að leggja í hann á morgun með vinnunni hans Friðþjófs stefnan er tekinn á Bilbai á spáni, jú jú það er tilhlökkun og kvíði allt í blandm finnst ég vera voða vond að fara frá þeim, ég hef nánast aldrei farið frá þeim nema jú kannski en núna fer ég frá þeim öllum og verð ein með Friðþjófur scery haha nei nei…

...dæmi um ekki góða tímastjórnun í dag var ég í Hlutverkasetrinu og allt í einu var klukkan orðin 1400 og ég átti þá að vera uppi í Grafarvogi heima að taka á móti Kristínu, jú jú ég náði heim á met tíma en engin Kristín jæja huxaði ég ok hún er bara á leiðinni ég kláraði þvottinn að mestu leiti og settist svo niður og hekklaði smá, síðan kom Kristín heim og var með vinkonu sína með sér, ég fór og tók út úr vélinni aftur þá var mér allt í einu hugað að tímanum ARG hún var orðin 1655 og ég átti að vera búin að ná í stelpurnar eða kl 1630 ég var alveg í spreng þannig að ég fór á klóið og hljóp á leikskólan náði þanngað um kl 1710 40mín of sein, svona hefur veikan verið meira og minna, núna til dæmis er ég ekkert farin að pakka eða huga að því sem ég ætla taka með nema jú þvo fötin, ég veit ekkert hvað ég ætla taka með eða hvað ég þarf að taka með úff of mikið að huxa ekki gott…

jæja ætla reyna róa hugan með því að spila einhvern leik í tölvunni eða kannksi hekla :)

þar til nærst góða fólk og já takk fyrir afmæliskveðjunar þó svo sumar hafi komið seint en þó komu ;)

ps, má ekki gleyma að segja ykkur frá því að hún María var að takak nokkur skref í gær voða dugleg svo í dag stóð hún upp og náði taki á lítilri kerru og labbaði af stað með henni ;) bara gaman að því
ykkar Inga á hvolfi

Skráð af Ingu Dögg - Comment

Aldurinn færist yfir ·

Thursday
9
October
2008

...það gerðist fyrir um 28 arum síðan að litið mey barn fæddist ungri móður og föður, henni var oft líkt við sólargeisla þar sem hún var mjög svo glaðvær og brosmilt barn, það hefur mikið vatn runnið til sjáfar síðan þá enda er þetta meybarn orðið að eiginkonu, móður, sistur, vinkonu, nágranna, kunningja o.s.fl vil ég bara óska foreldum þessa mey til hamingju með daginn…

...annars gengur lífið hér sinn vanagang, við Kristín höfðum það voða notarlegt í Vindárshlíð kynntumst þarn mörgum bara voða gaman, stúlkurnar mínnar tvær sem heima voru komu svo og sóttu okkur og ætluðu þær að eta mig þegar þær svo hittu mig, veit ekki hvernig þetta verður aðra helgi þar sem við hjóninn ætlum að skella okkur til Bilbao frá fimmtudegi og koma á mánudegi heim bara stutt helgarferð með vinnufélögum Friðþjófs…

Eigið góða helgi, hver veit nema það verði heitt á könnunni og eitthvað með því á laugardaginn eftir kl 1400

Kveðja við hér í kotinu

Skráð af Ingu Dögg - Kveðjur [6]

ótrúlegt ·

Thursday
2
October
2008

...já ég segi bara þetta er ótrúlegt, ég er alveg hætt að leyfa mér eitthvað þar sem við ætluðum að taka fjármálin í gegn hjá okkur jú það gekk mjög vel ég pantaði bara pizzu 2 x þennan mánuðinn, minnkaði allt nammiátt, fór að elda minna svo maður, en nei smat var vísa mitt 200þúskr hærra þennan mánuðinn, maður spyr sig bara , hvert fara þessir penningar núna verður það ekkert elsku mamma núna á að losa sig við bil eiginmansins og vera á einum bíl ég ætla fara ferðast með strætó, og labba allt sem ég ferð ódýrlíkamsrækt í leiðinni ;) bara gaman að því ekki jafn viss að börinn verða jafn sátt hahaha en þau um það þau verða fljót að venjast því...

...ég var að reikna að ganni mínu hvað maður hefur tapað mikið á þessu góðæri eða þannig þá áttum við 6,5 millur þegar við flytjum heim í dag er það löngu horfið og ef við losum okkur við allt þá stöndum við uppi með 3 milljónir í mínus semsagt búin að tapa 9,5 milljónum á 1 1/2 ári já, við höfum það nú samt voða gott ekkert að fara á hausinn allavega ekki nærstu 3 mánuði held ég margur sem hefur það verr en við, en halló common hvað er hægt að gera annað en að þærla sér út til að ná endum saman gott fyrir geðheilsuna ekki satt eða hvað...

jerímíast endalaust væl og volæði en ég hef það nú samt bara voða gott takk fyrir að spyrja:)

ég spyr bara var það þess virði að koma heim?

Skráð af Ingu Dögg - Var það þess virði að koma heim [4]

Nokkur skot ·

Monday
29
September
2008

Kristín lasin

Auður í móðurhlutverkinu

María grallari

...annars er fínt að frétta

Auður var bleyjulaus í gær og fór 10x á klósettið og pissaði missti niður 3x og gerði svo stóra hluti í klósettið 1x var mjög dugleg sagði alveg sjálf til ég ýtti ekkert á hana…

Kristín var hjá pabba sínum um helgina og kom hress til baka…

María er öll komin af stað skríður hér um allt á flegi ferð er komin upp á stóla og klifraði upp í sófa með hjálp stóls sem hún setti fyrir framan sófan:)...

ég keypti mér kort í Hreyfingu um helgina svo núna er bara harkan 6, stefni á 500gr á viku svo þá verð ég komin undir 80kg fyrir jól eða það er markmiðið mitt svo set ég annað eftir jól;)...

Mér finnst nú hann Friðþjófur ætti bara sjálfur að segja frá því hvað hann er að huxa og gera svo ég er hætt að tjá mig um hvað hann er að gera, svo ég skora á hann að blogga smá þó svo það væri ekki nema 10 orð:)...

Með kveðju Inga pinga

Skráð af Ingu Dögg - Kveðjur og athugasemdir

blendnar tilfinningar ·

Friday
26
September
2008

...já það mánú segja það búin að vera í þessu líka örugga umhvefi og á lei út í veröldina, smá smeik en hey ég get það alveg ;)...

... ég tók próf í byrjun til að mæla þunglyndið og mældist ég yfir 50 stig veit ekki hvort það er mikið eða lítið en svo tók ég það aftur eftir 4 vikur og var þá 36, ég tók sama próf aftur á þriðjudaginn og hey vitir menn þá fékk ég töluna 17 sem er bara afburða góður árangur á 7 vikum ;) ekki satt…

...allir að hressast á heimilinu Kristín skellti sér til keflavíkur í gær og ætlar að fá að jafna sig í faðmi pabba sins:) ekki er það nú slæmt, Auður er hress að vanda, María er komin með smá roða í eyrun svo ég fékk við því þar sem hún er svo mikið inn á leikskóla að hún nær ekki að vinna sjálf á þessu…

...Friðþjófur já hann Friðþjófur hann stendur sig alltaf eins og hetja, dugnaðarforkur heldur utan um okkur allar, og elskum við hann fyrir það og auðvitað elskum við hann bara fyrir að vera hann sjálfur, hvað værum við án hans og hehe hann án okkar ekki satt, við Friðþjófur erum á leið til Bilbai hvernig sem þetta er nú skrifað jú jú karlinn ætlar að bjóða frúnni með sér þanngað í helgar ferð, ef ég man rétt förum við út þann 16. okt ég jiii man það bara ekki eða þarna um kring á fimmtudeginum og komum heim á mánudegi þetta er árshátíð í vinnunni hans og eru stelpurnar búnar að stúdera hvar H&M eru þarna svo ég þarf ekki að huxa mikið í þessari ferð nema vera til, Þórunn Frænka og Svana Vinkona (þær eru sistur) ætla vera hér heima með stelpurnar okkar meðan við förum í firsta sinn eitthvað ein(hissa) já svona er þetta bara…

...man ekki hvort ég hef skrifað um þetta en þá segi ég það bara aftur við Kristín ætlum að skella okkur á mæðgna helgi í Vindárshlíð þann 3.okt-5.okt erum við voða spenntar fyrir því enda eki mikið fengið tíma saman…

...jæja best að fara koma okkur af stað kl er núna 0709 á föstudagsmorgni og við erum allar tilbúnar að fara út, hér er sko vaknað með pabbanum kl 0600 ég fer bráðum að taka fyrir það aðhann vakni svona snemma svo ég fái að sofa hann getur bara farið eftir vinnu í ræktina ekki satt tíhí, nei nei þetta er allt í lagi meðan ég vakna humm…

eigið góða helgi öllsömul knúss og kossar til ykkar frá mér og mínum

ykkar Inga Pinga

Skráð af Ingu Dögg - Kveðjur og athugasemdir [2]