... ekki tími til að gera síðasta bloggið fyrir árið 2008…
...af okkur er bara prýðilegt að frétta, allir kátir og glaðir, jólahátíðin var í faðmi vina og fjölskyldu, söknuðum samt Kristínar voðalega mikið...
...Auður já mér var litið inn til hennar eitt kvöldið og leitt á hana þar sm hún lá í rúmi sínu og mér brá litla barnið mitt já litla barnið mitt var að verða of stór í rúmið sitt vantar bara 15 cm ca upp á, þannig að við hjónin fórum að skoða rúm á netinu og OMG hvað rúm eru dýr það er ekki verð fyrir fólk sem er ekki útivinnandi að kaupa, við ætlum að bíða smá með þetta ath hvort ekki komi einhverjar útsölur af rúmum, allir að krossleggja fingur með okkur, Auður er líka búin að vera smá lasin, höfum farið reglulega með hana til læknis þar sem hann er ekki sáttur með andadráttinn hjá henni, sýklalyfin hjálpuðu ekkert til erum núna að prófa púst hún vil ekki sjá það svo við þurfum að vera tvö til að gefa henni það ekki skemmtilegt en kemur í ljós núna milli jóla og nýars hvort það sé að virka…
...María er alltaf jafn kát, hún sofnaði yfir þriðjapakkanum á aðfangadag ;) þá klukkan bara 1930 hún bara getur ekki haldið sér lengur vakandi sama hvað við látum hana sofa um daginn kl 1900 á að fara upp í rúm og sofa hún er svo mikið reglumaneskja…
...Kristin hefur verið hjá pabba sínum um jólahátíðina, og ég hef ekki mikið heyrt frá henni en það er bara merki um að henni líði vel ;)...
...Friðþjófur hefur verið í sumarfríi núna frá 19. des skrítið að hafa hann svona heima , en voða gott að hafa smá tíma fyrir okkur líka hann fer að vinna 5. jan…
...Inga (ég) er farin að kvíða því að byrja í skólanum þann 9. janúar en fer að sækja stundatöfluna mína þann 6. jan, úff fæ alveg í magan bara að skrifa um þetta, ég fór á blindrabókasafnið og náði mér í Mírina og er alveg hútt á að hlusta á hana tók alveg 150 blaðsíður í gær gat ekki hætt svo ég klára hana á morgun það er met hjá mér að ná svo miklu á 3 dögum víí eitthvað gott haha…
...verð að segja ykkur frá því þegar við fórum að ná okkur í jólatré við fórum út í skó þar sem má höggva sér sjálfur tré það var voðalega gaman að labba um og að fá alla til að vera sátta við tréið ;) við fundum eitt sem var alveg 3 metrar haha það var eina sem við vorum sátt með og tókum það þannig að við enduðum með það í 2,6 meturm haha ég varð að keyra heim Friðþjófur komst ekki fyrir í bílstjóra sætinu, þegar heim var komið voru aðrir 3ocm teknir af og núna nær jólastjarnan upp í loft hahaha og það gleypir stofuna mína en þetta er ekkert smá flott jólatré ;)...
...vil þakka öllum sem hafa nennt að lesa bloggið okkar takk fyrir okkur og við óskum ykkur um leið gæfuríkt komandi ár, og þökkum liðnar stundir á því liðna…
Hátíðarkveðjur
Inga, Friðþjófur, Kristin, Auður, María og Rósa:)
Skráð af Ingu Dögg -

Skoðannir
Gleðilegt ár sömuleiðis;)
hefur verið gaman að lesa bloggið ykkar á árinu..;)
kv.Konný og co.
— Konný Dec 29, 13:52 #Gleðilegt ár! Takk fyrir liðið, sérstaklega þó grillið í sumar.
Inga, þessi skóli verður pís of keik fyrir þig, mundu bara að hafa gaman á meðan.
knús á línuna, Ósk
— Ósk Gunnlaugsdóttir Jan 4, 23:16 #