Deprecated: Function set_magic_quotes_runtime() is deprecated in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php on line 14 Warning: Cannot modify header information - headers already sent by (output started at /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php:14) in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_misc.php on line 1240 : Andlits brók
Go to content Go to navigation Go to search

Andlits brók ·

Tuesday
31
March
2009

...góðan og blessaðan…

...eins og fram hefur komið í síðustu færslu minni hef ég verið í skóla eftir áramót, og þar af leiðandi hefur verið mikið að gera hjá mér og ég ekki komist í að blogga, síðan er það þessi blessaða brók sem maður er alltaf á þegar maður á sér smá frí ;) þá gleymir maður alveg þeim sem ekki hafa þessa brókasótt ;)....

...annars er allt fínt að frétta á þessum bæ hér hafa allir verið frekar hressir seinni hluta vetrar, fyrir utan smá kvef og því sem fylgir því...

...Kristín er hress að vanda, hefur verið núna í ca tvo mánuði að hitta hann Már sem er barnasálfræðingur, þau eru að vinna saman að því að styrkja Kristinu þar sem hún er ekki nógu vel stödd félagslega, stór karakter með pínu lítið hjarta, svo er stefnan að fara á félagsfærninámseið þegar það hefur samnast nógu margir þáttakendur á það, það námseið felst í því að læra að samskipti við aðra krakka og vini sína, hún hefur verið dugleg í vetur að stunda fimleika og tók hún þátt í innanfélagsmóti núna í vetur og var ekki sátt að hafa ekki unnið sér til verðlauna, hún hélt andlitunu þangað til við vorum alveg að komaheim þá bara brast hún í grát og sagði: ,,MAmma þú veist hvað ég er tappsár, svo var ég miklu betri en sú sem van í mínum hóp,, hvað getur maður sagt annað en að hún hafi staðið sig með prýði og hún geri bara betur nærst og verði dugleg að æfa sig…

...Auður litla fiðrildið okkar sem getur bara ekki verið kjurr, ég nefndi þetta við þær á leikskólanum og þær sögðust ekki hafa tekið eftir neinu sérstökku, tveim dögum seinna þá segja þær við mig að þær hafi fylgst betur með henni síðustu tvo daga, og kom það í ljós að hún er eina í sínum hóp sem getur bara ekki sitið kjur haha kom mér ekkert á óvart samt eru hinar stelpurnar fæddar í júlí, sept og okt sama ár og hún sem er í apríl, ég bað þær að koma fram við hana eins og hún væri ofvirk semsagt með fasta rama hvað má og hvað ekki svo hún læri þetta sem first ;) hún er nú líka bara að verða 3 ára…

...María litla ákveðnust, já já þær verða bara ákveðnari og ákveðnari þessar dætur mínar og ákveðnust er litla prinsessan, hún gjörsamlega stjórnar öllum hér nema mömmunni enda þolir hún það ekki og fær þessi svaka sköst sem ég bara veit ekki hvar hún lærir en hún er samt mjög fljót að jafna sig á þeim, þar sem mamma tekur bara ekki eftir neinu þegar hún byrjar ;), fljót að læra að það þýðir víst ekkert að snúa þeirri sem er ákveðnust múhahaha, en annars er hún alltaf jafn blíð og góðo og mikil kelirófa kemur upp að manni og knússar mann gak og fyrir …

...Friðþjófur minn, já hann samþykkti loksins að koma með mér til háls- nef og eyrnalæknis, og sér eftir því í dag þar sem hann þarf að fara í hálskirtlatöku þar sem þeir eru ornir svo stórir og ljótir, hann fyrirgefur mér þetta örugglega aldrei eða hvað...

...Ég(Inga) skólastelpan sem gerir ekekrt annað en að læra og læra og samt finnst mér ég ekki læra nóg, hef verið að fá bara fínt út úr stöðumatinu, fékk A í öllu miðannarmatinu það er ekki sæmt síðan fékk ég meira að segja A+ fyrir vinnu bók í Dönsku en ekki hvað ;), núna fer að styttast í lok þessa veturs og líða tekur að vorið, páskarnir í nærstu viku svo verða prófin mín þann 12 og 14 maí þar sem ég hef náð tveimur áföngum ;) fer ég bara í tvö próf NICE…

...þið sem en lítið hér inn takk fyrir alla þolinmæðina og vona að þið eigið gott páskafrí knúss og kossar frá okkur til ykkar…

Skráð af Ingu Dögg -

Skoðannir

  1. Dugnaðarforkur!!!
    Knús til ykkar allra

    Anna Soffía    Mar 31, 14:20    #
  2. Gaman ad heyra eitthvad fra ykkur loksins! Vonandi halda hlutirnir afram ad ganga svona vel. Hlakka til ad heyra i ther vid taekifaeri. Kvedja ur 18 grada hita lengst upp i Fronsku olpunum!

    Freyja    Apr 10, 19:24    #

Það hefur verið lokað fyrir skilaboð