Deprecated: Function set_magic_quotes_runtime() is deprecated in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php on line 14 Warning: Cannot modify header information - headers already sent by (output started at /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_db.php:14) in /customers/8/d/0/ifgroup.dk/httpd.www/textpattern/lib/txplib_misc.php on line 1240
Go to content Go to navigation Go to search

Kristín ·

Monday
10
November
2008

...Það er ýmislegt sem henni Kristínu dettur í hug. Til dæmis í gær þegar hún var að fara að sofa, (tek það fram hún var hjá pabba sínum um helgina og þá er alltaf vesen á henni að fara að sofa á sunnudögum).

Um klukkan átta datt henni í hug að laga til í herberginu sínu sem gerist á svona tveggja ára fresti. Hún var að dunda sér í því þar til danski læknaþátturinn byrjaði, en við horðum á hann saman. Síðan fór hún aftur upp í rúm klukkan 22:00, en nei þá hún byrjaði hún aftur eitthvað að vesenast inni í herbergi, laga til og svona. Þá ég fór inn til hennar og breiddi yfir hana og sá hún var alveg við það að sofna.

Tíu mínótum seinna heyri ég að hún er ennþá eitthvað að bartúsa, ég fer inn og bíð henni góða nótt og hún fær sér bók og legst aftur í rúmmið. En klukkan 2300 og enn heyri ég í henni fer inn þá er hún búin að finna gömlu segulbandspólurnar mínar, og var að hlusta á þær. Fyrir það fyrsta var Friðþjófur búinn að fara einu sinni inn til hennar og hjálpa henni að setja spólu í tækið, þar sem hún er ekki á þeirri kynslóð að notast við svona úrelta tækni.

Ég er orðin frekar þreytt og pirruð og fer inn til hennar tek þá spórurnar og segi “núna ferð þú að sofa í hausin á þér stelpa”, þá verð ég vör við hvað hún er að hlusta á. Ég spyr hana hvort það sé ekki fullt snemmt fyrir hana að undir búa sig fyrir fæðingu barns, því hún var að hlusta á spólu um hvernig á að standa að fæðingu

,,núna hefur þú undirbúið þig fyrir síðasta áfangan finnur hvernig barnið þrýstist niður í fæðingarvegin og þú dregur djúpan anda og þú einbeytir þér að koma barninu í gegnum fæðingarveginn,,

Ég gat ekki annað en farið að hlægja og greyið stelpan. Ég sagði henni að þegar hún var í maganum á mér, þá hefði ég hlustaði á þetta og að pabba hennar hafi ekki þótt þetta skemmtileg áheyrn. Ég lág oft inni í herbergi með heyrnartól og hlustaði á þetta og sofnaði út frá því. Ég fór inn og gerði mig til búna fyrir svefninn, en á endanum vann stelpu rófan, því ég lagðist hjá henni þar til hún sofnaði, Friðþjófur náði ekki sjálfur að sofna án mín haha ég er svo ómissandi

En mig langaði bara að deila þessu með ykkur vona að þið hafið átt góða helgi

Kveðja Inga Pinga

Skráð af ifgroup.dk - Comment [2]

Til hamingju með afmælið ·

Saturday
16
August
2008

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Kristín,
hún á afmæli í dag.

Hún er átta ára í dag,
hún er átta ára í dag,
hún er átta ára hún Kristín,
hún er átta ára í dag.

Hipp hipp húrra húrra
húrra húrra húrra
húrra húrra húrra

Við óskum henni innilega til hamingju með afmælið, ætlum að vera með smá kaffi í dag kl 1300 því svo verður hún með stelpupartý kl 1500 og auðvitað verður sjónvarpað handboltaleiknum :)

Ég vill líka óska Rakel til hamingju með litla drenginn sem kemur í heiminn þann 14. ágúst.

Annars er allt fínt að frétta búið að vera mikið að gera, ég er búin með fyrstu vikuna á Reykjalundi, vá hvað maður var búin á því og mikið að meðtaka. Maður þarf sko alla sína orku bara í að klára daginn, annars legst þetta voða vel í mig…

Stelpurnar unna sér voða vel á leikskólanum, ég var spurð hvort þær bara yfir höfuð grétu ekkert. Jú jú ef það er eitthvað sem er að, þá gera þær það en samt voða lítið.

Kristín er búin að vera á hótel Ömmu alla vikuna, hún er búin að vera dugleg að draga ömmu út um allt. Þær fóru í húsdýragarðinn, sund, fóru í heimsókn til Hönnu Stínu. Kristinu fannst samt mest standa upp úr að fá að fara með ömmu sinni í sjúkraþjálfun….

Friðþjófur hefur það líka gott, við fórum til mömmu hans á þriðjudaginn þar voru litlu kraftaverkin, þær stóran og litlan eins og þær eru kallaðar ;) þó svo það sé ekki mikil munur á þeim í dag en jii hvað þær voru sætar og litlar miða við mín trölla börn haha

jæja ætla fara vekja afmælis barnið og knússa hana

Með kveðju Inga, prinsessurnar og prinsinn

Skráð af Ingu Dögg - Afmæliskveðjur

Gullkorn Kristín ·

Tuesday
15
January
2008

... við lágum upp í rúmi og vorum að klára að lesa fyrir skólan þegar Auður fer að gráta og ég segi henni að liggja bara og æfa sig á meðan, þegar ég sný aftur þá liggur hún voða huxin og svo segir hún ...mamma hérna get ég ekki bara fengið svona konu sem kemur og þrífur fyrir mig, ég get borgað henni penning fyrir ekki mikin penning samt bara smá þá þarf þú ekki alltaf að vera skamma mig fyrir draslið mitt… ég átti voða erfitt með mig…
ég-já það er sniðugt en viltu ekki eyða penningunum í annað ástin mín
Kristín- ég ætla ekki að borga heldur þú
—svo hér með auglýsi ég eftir starfsmanni í þrif lofa borgun en ekki mikið

Skráð af Ingu Dögg - Eru ekki allir í stuði? [5]

Prinssessan á bauninni ·

Thursday
8
March
2007

það var kallað á mig í morgunn

K: mamma
M: já Kristin mín hvað vantar
K: ferðu í búð í dag
(hún er inni í herbergi að klæða sig fyrir skólan ég frammi að gefa AUði)
M: já ég býst við því
K: viltu þá kaupa fyrir mig Svartan bol mig vantar svo við svarta pilsið mitt og svörtu gamósíurnar
M:áttu ekki hvítan eða einhver lit til að blanda saman við
K: það passar ekki
M: :O

segið mér er þetta það sem koma skal, svo í framtíðinni þá verður það mamma mig vantar bíl til að komast út í búð til að kaupa þetta sjálf eða…

Med venlig hilsen

mamma í sjokki
m/ ungling á heimillinu

Skráð af ifgroup.dk - Hvað finnst ykkur [3]

Gullkorn dagsinns ·

Tuesday
31
October
2006

K: mamma þarft þú ekki að fara í svona lögun
M: hvað áttu við Kristin mín?
K: jú svona eins og konurnar í sjónvarpinu
M: nú þarf ég það?
K: já þú ert svona eitthvað skrítin í framan o í svona ljótum fötum eins og þær, og smá feit eða kannski mikið
M: takk fyrir að huxa svona mikið og vel til mín ástin mín

mamma gengur í burtu og svo gargar Kristin 3mín seinna

K: mamma þú þarft samt ekki að gera svona gat á hausin þinn eins og þær eru að gera eða þú kannski færð bara svefntöflu til að finna ekki fyrir þessu, en hvernig vaknar þú þá á eftir….

já gaman að vita hvernig barninu finnst um mig :) pússa hér pússa þar pússa smá alstaðar:

Skráð af ifgroup.dk - Hvað finnst ykkur um þetta?

Gullkorn ·

Tuesday
10
October
2006

Við erum að fíflas mamma og Kristin og Kristin segir
K: mere mor
M:nej de vil jeg ikke
K nei mamma þú sagðir þetta ekki rétt
M:nú hvernig á ég að segja þetta Kristín mín
K:de vil jeg got gere

Lúmsk hehe

M: kristin viltu hætta að borða á þér hárið
K: ok
2mín seinna
M: Kristin hvað sagði ég um hárið
K:hvað ég gerði ekkert það bara datt upp í mig 

Skráð af Ingu Dögg - betra er að gefa en þyggja

Hver er ég.....? ·

Monday
11
September
2006

Jú ég er hún Kristin Helga og er dóttur mömmu minnar og pabba
þau búa nú reyndar ekki saman en þau eiga sína maka, eins og ég kýs að kalla það eiginkonu og eignmann…

Mamma mín heitir Inga Dögg(80) og heitir eiginmaður hennar Friðþjófur(80) eiga þau saman hana Auðir yngstu systur mína samt ekki minnstu….

Pabbi minn heitir Örn(77) og eiginkona hans heitir Mæja(78) eiga þau saman þau Almar Örn og Aldísi Ögn eru þau aðeins 5 dögum eldri en Auður samt minni;)
Búa þau í Keflavík og reyni ég að fara til þeirra eins oft og ég get…

Ég bý hjá múttu minni og Friffa í Danmörku, ég er þar í skóla í 0-a sem er 1.bekkur heima á Íslnadi ég uni mér voða vel en er samt með heimþrá alltaf annað slagið, sakna pabba svolítið mikið....

jæja þar til mamma er búin að koma þessu eitthvað betur fyrir verður þetta svona þanngað til….

Með kveðju ykkar
Kristin Helga

Skráð af ifgroup.dk - Kveðjur hér....