...Það er ýmislegt sem henni Kristínu dettur í hug. Til dæmis í gær þegar hún var að fara að sofa, (tek það fram hún var hjá pabba sínum um helgina og þá er alltaf vesen á henni að fara að sofa á sunnudögum).
Um klukkan átta datt henni í hug að laga til í herberginu sínu sem gerist á svona tveggja ára fresti. Hún var að dunda sér í því þar til danski læknaþátturinn byrjaði, en við horðum á hann saman. Síðan fór hún aftur upp í rúm klukkan 22:00, en nei þá hún byrjaði hún aftur eitthvað að vesenast inni í herbergi, laga til og svona. Þá ég fór inn til hennar og breiddi yfir hana og sá hún var alveg við það að sofna.
Tíu mínótum seinna heyri ég að hún er ennþá eitthvað að bartúsa, ég fer inn og bíð henni góða nótt og hún fær sér bók og legst aftur í rúmmið. En klukkan 2300 og enn heyri ég í henni fer inn þá er hún búin að finna gömlu segulbandspólurnar mínar, og var að hlusta á þær. Fyrir það fyrsta var Friðþjófur búinn að fara einu sinni inn til hennar og hjálpa henni að setja spólu í tækið, þar sem hún er ekki á þeirri kynslóð að notast við svona úrelta tækni.
Ég er orðin frekar þreytt og pirruð og fer inn til hennar tek þá spórurnar og segi “núna ferð þú að sofa í hausin á þér stelpa”, þá verð ég vör við hvað hún er að hlusta á. Ég spyr hana hvort það sé ekki fullt snemmt fyrir hana að undir búa sig fyrir fæðingu barns, því hún var að hlusta á spólu um hvernig á að standa að fæðingu
,,núna hefur þú undirbúið þig fyrir síðasta áfangan finnur hvernig barnið þrýstist niður í fæðingarvegin og þú dregur djúpan anda og þú einbeytir þér að koma barninu í gegnum fæðingarveginn,,
Ég gat ekki annað en farið að hlægja og greyið stelpan. Ég sagði henni að þegar hún var í maganum á mér, þá hefði ég hlustaði á þetta og að pabba hennar hafi ekki þótt þetta skemmtileg áheyrn. Ég lág oft inni í herbergi með heyrnartól og hlustaði á þetta og sofnaði út frá því. Ég fór inn og gerði mig til búna fyrir svefninn, en á endanum vann stelpu rófan, því ég lagðist hjá henni þar til hún sofnaði, Friðþjófur náði ekki sjálfur að sofna án mín haha ég er svo ómissandi
En mig langaði bara að deila þessu með ykkur vona að þið hafið átt góða helgi
Kveðja Inga Pinga
Skráð af ifgroup.dk -

Skoðannir
Hehehehe það er kannski ágætt að hún byrji að undirbúa sig snemma ekki veitir af:)
— Eva Dögg Nov 14, 12:37 #Kveðja ú næsta Engi!
heheehehe;)
— Konný Nov 15, 12:37 #knús á ykkur sæta fjölskylda